Bygg
Bygg

Fréttir

Sumarsólstöður í dag
Mánudagur 21. júní 2004 kl. 11:22

Sumarsólstöður í dag

Í dag eru sumarsólstöður og útlit fyrir að veðrið muni leika við Suðurnesjamenn í dag. Það ættu því að vera kjöraðstæður til að upplifa lengsta dag ársins hvort sem menn kjósa að vera uppi á Keili eða Þorbirni, við Garðskagavita eða Stafnes, í Sandvík, uppi á Stapa eða heima í stofu.

Annars er það af ferðalögum og útivist á Reykjanesi að frétta að mikill áhugi er á víkingaskipinu Íslendingi, ekki síst hjá erlendum ferðamönnum. Hægt er að skoða Íslending í Rammahúsinu virka daga kl. 13:00 - 16:00, en helgaropnun er í samráði við Gunnar Marel umsjónarmann í síma 894 2874. Þá geta hópar pantað tima hjá starfsfólki Duus-húsa í síma 421 3796.

Á tímabilinu 1. maí til 10. júní komu um 1500 gestir að skoða Íslending og fá fræðslu um skipið, þar af um 800 grunnskólanemar víðs vegar af landinu. Erlendir gestir hafa verið frá fjölmörgum löndum og má nefna frá Ameríku, Kanada, Þýskalandi, Danmörku, Noregi og Finnlandi. Nokkrir hafa einnig skoðað Stekkjarkot í leiðinni.

Þá má geta þess að veiði hefur verið góð í Seltjörn á Reykjanesi og eru veiðimenn að setja væna urriða í bland við hefðbundna 1 - 3 punda fiskinn sem hefur aðallega verið sleppt í vatnið. Einnig hafa veiðst þar nokkuð góðar bleikjur allt að 5 pundum en stærsti urriðinn sem hefur veiðst var um 8 pund.
Alls hafa veiðst um 1.000 urriðar í vatninu síðan það var opnað í lok apríl. Meiri fisk hefur verið sleppt í vatnið undanfarið og er því ávallt góð veiðivon. Skemmtilegt er að fylgjast með hegðun urriðans en hann virðist skipta sér eftir stærðum á viss svæði í vatninu sem telst nokkuð áhugavert.
Seltjörn er opin á hverjum degi frá 10 – 21.

Myndir og texti: reykjanesbaer.is

Bílakjarninn
Bílakjarninn