Sumarbústaðabyggð rís á Þóroddstöðum

Sandgerðisbær mun einnig reisa sumarbústaði og leigja út lóðir til byggingar bústaða á svæðinu. Ingimar sagðist í samtali við Víkurfréttir vera bjartsýnn á að þessi hugmynd gæti laðað að ferðamenn til Þóroddsstaða og taldi möguleikana á ferðaþjónustu mikla á þessu svæði með tilliti til uppbyggingar bæði í Sandgerði og Garði. Skammt frá Þóroddsstöðum er staðsettur golflvöllur Sandgerðinga. Ingimar stefnir á að heitt vatn verði lagt að bústöðunum, en Hitaveita Suðurnesja telur kostnað á því ekki arðbæran og hefur því ekki gefið grænt ljós á slíkar framkvæmdir, þó segist Ingimar bjartsýnn á að það verði gert.