Súld með köflum
Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt, víða 5-10 m/s í dag, en 13-18 vestanlands fram að hádegi. Léttskýjað norðaustanlands, en víða þokuloft eða súld með köflum sunnan- og vestan til. Suðvestan og vestan 3-8 m/s og skýjað að mestu á morgun, en dálítil rigning eða skúrir norðan og vestan til. Hiti víða 9 til 18 stig í dag, hlýjast norðaustanlands, en heldur svalara á morgun.