HSS
HSS

Fréttir

Súld eða rigning í dag og næstu daga
Mánudagur 8. september 2008 kl. 07:09

Súld eða rigning í dag og næstu daga

Faxaflói:

Suðaustan 8-15 en mun hvassara í hviðum hlémegin fjalla. Hægari um tíma síðdegis. Austlægari í kvöld. Súld eða rigning. Suðaustan 5-10 eftir hádegi á morgun og úrkomulítið. Hiti 8 til 13 stig.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag:
Suðaustan 5-10 m/s og rigning sunnan- og suðaustantil á landinu, en skýjað með köflum norðaustanlands. Hiti 9 til 15 stig.

Á miðvikudag:
Austlæg átt með rigningu sunnan- og austanlands, en annars úrkomulítið. Hiti 7 til 12 stig.

Á fimmtudag:
Norðaustanátt með rigningu norðan- og austanlands, en annars úrkomulítið. Milt í veðri.

Á föstudag:
Norðan og væta norðanlands en gengur í suðaustanátt sunnanlands og þykknar upp. Hiti breytist lítið.

Á laugardag:
Suðaustanátt með rigningu sunnan- og vestanlands. Áfram milt í veðri.

Á sunnudag:
Suðlæg átt og rigning en þurrt norðaustantil. Hiti 8 til 13 stig.

Af veður.is