Suðvestlæg átt og skýjað með köflum

Suðvestlæg eða breytileg átt, víða 3-8 m/s. Skýjað með köflum og stöku skúrir vestantil og á hálendinu og sums staðar rigning suðaustanlands í dag, annars úrkomulítið. Vaxandi suðaustan og austanátt í fyrramálið og fer að rigna suðvestantil. Austan 8-18 og rigning síðdegis, en hægari og úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 10 til 18 stig að deginum.