Suðvestanátt og skúrir
Suðvestan 5-13 m/s, en norðlægari á Vestfjörðum. Víða dálítil rigning eða skúrir, en bjart veður A-lands. Norðvestan 8-13 á morgun og rigning á norðanverðu landinu, en léttskýjað syðra. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Austurlandi í dag, en sunnanlands á morgun
Faxaflói:
Suðvestanátt, víða 8-13 m/s og skúrir. Snýst í Norðan 13-18 í fyrramálið og léttir til. Hiti 10 til 13 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Norðan- og norðvestan 8-15 m/s og súld eða rigning á norðanverðu landinu, en bjart sunnanlands. Lægir smám saman vestan til. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast syðst.
Á miðvikudag:
Norðvestan 8-13 m/s og dálítil væta norðaustanlands, en annars víða léttskýjað. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast sunnan til.
Á fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag:
Norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en skúrir á víð og dreif síðdegis. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á S- og V-landi.