Suðvestan og vestan 18-25 m/s og éljagangur eða skafrenningur
Suðvestan og vestan 18-25 m/s og éljagangur eða skafrenningur við Faxaflóa. Lægir í nótt, fremur hæg vestanátt á morgun og lítilsháttar él. Frost 0 til 5 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðvestan og vestan 15-23 m/s og éljagangur. Lægir í nótt, fremur hæg vestanátt á morgun og lítilsháttar él. Frost 0 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Hæg vestlæg eða breytileg átt og bjart að mestu. Frost 0 til 12 stig, kaldast inn til landsins.
Á föstudag:
Sunnan 10-18 m/s og rigning eða súld, en úrkomulítið á NA-verðu landinu. Hlýnandi, hiti 3 til 9 stig síðdegis.
Á laugardag og sunnudag:
Suðlæg átt og væta með köflum, en þurrt að mestu á NA- og A-landi. Kólnar heldur.
Á mánudag:
Snýst líklega í suðvestanátt með snjókomu eða éljum og kólnandi veðri.