Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Suðurstrandarvegur fái meiri vetrarþjónustu
Þriðjudagur 9. febrúar 2016 kl. 09:33

Suðurstrandarvegur fái meiri vetrarþjónustu

Bæjarráð Grindavíkurbæjar tekur undir áskorun bæjarráðs Árborgar þar sem farið er fram á að Vegamálastjóri breyti skilgreiningu á vetrarþjónustu fyrir Suðurstrandarveg á þann hátt að þjónusta á veginum verði færð upp um þjónustuflokk.

Nú fellur Suðurstrandarvegur í þjónustuflokk 4, líkt og vegir þar sem meðalumferð nemur innan við 100 bílum VDU (vetrardagsumferð) og fær vetrarþjónustu 1-2 daga í viku, en samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar mældist umferð um Suðurstrandarveg þegar árið 2014 172 VDU við Festarfjall og 142 VDU við Selvog og hefði því þátt að breyta þjónustu við veginn eigi síðar en síðasta haust.

Miðað við umferð ætti Suðurstrandarvegur að vera í þjónustuflokki 3 og vera með vetrarþjónustu 5 daga vikunnar. Vegna tíðra lokana Suðurlandsvegar á Hellisheiði og í Þrengslum er mjög brýnt að hafa möguleika á að beina umferð um Suðurstrandarveg. Lokanir á Suðurlandsvegi hafa mikil og neikvæð áhrif á íbúa og fyrirtæki á svæðinu og nauðsynlegt að hafa aðra leið færa á milli Suðurlands og höfuðborgarsvæðisins/Suðurnesja.

Bæjarráð Grindavíkurbæjar tekur undir áskorun bæjarráðs Árborgar og felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir við Vegamálastjóra.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024