Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Suðurstrandarvegur áfram lokaður vegna sprungna og sigs
Myndir af skemmdum á Suðurstrandarvegi. Ljósmyndir: Vegagerðin
Föstudagur 19. mars 2021 kl. 15:57

Suðurstrandarvegur áfram lokaður vegna sprungna og sigs

Suðurstrandarvegur er lokaður við Festarfjall, frá Hrauni og að Krýsuvíkurafleggjara vegna sprungna og sigs í vegi. Á vef Vegagerðarinnar segir að reiknað er með að vegurinn verði lokaður a.m.k. fram yfir helgi.

Ástand Suðurstrandarvegar við Festarfjall er svipað og var í gær en hefur heldur þróast til verri vegar. Í ljósi áframhaldandi jarðskjálftavirkni og spár um rigningu á svæðinu næsta daga hefur verið tekin sú ákvörðun að halda veginum lokuðum a.m.k. fram yfir helgi. Fylgst verður náið með ástandinu um helgina og ákvörðun um framhaldið tekin í byrjun næstu viku.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Við skoðun í morgun komu í ljós nýjar sprungur og hefur sigið aðeins meira á þeim stöðum sem vegurinn hafði sigið áður.

Neyðaraðilar, í samráði við Vegagerðina, geta farið um Suðurstrandarveg reynist þess þörf en mælt er með að menn aki hlíðar megin á veginum og verður tryggt að hin akreinin sé óaðgengileg og er það gert með gátskjöldum.

Bætt verður við skiltum til að láta vegfarendur vita með lengri fyrirvara en áður, hvorttveggja í Grindavík og við Þorlákshöfn.