Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Suðurnesjasamstarf gegn heimilisofbeldi tekist vel
Frá fundi um samstarfsverkefnið fyrr á árinu
Þriðjudagur 13. ágúst 2013 kl. 11:10

Suðurnesjasamstarf gegn heimilisofbeldi tekist vel

Átak gegn heimilisofbeldi fór af stað í febrúar og taka öll sveitarfélögin þátt

Þann 1. febrúar sl. hófst samstarfsátak á Suðurnesjum er varðar heimilisofbeldi. Þátttakendur í átakinu er Lögreglan á Suðurnesjum, Fjölskyldu- og félagsþjónusta Reykjanesbæjar og félagsþjónustan í Grindavík, Sandgerði, Garði og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Keflavíkur- og Njarðvíkurkirkja styðja við átakið og hægt er að leita til þeirra eftir þörfum.

Markmið með átakinu er að gefa út skýr skilaboð til fólksins um að ofbeldi á heimilum verður ekki liðið ásamt því að veita þolendum heimilisofbeldis betri þjónustu. Það er gert með því að Lögreglan á Suðurnesjum leggur sérstaka áherslu á rannsókn heimilisofbeldismála. Þegar lögreglan fær tilkynningu um heimilisofbeldi þá hefur hún samband við félagsþjónustuna á svæðinu og starfsmaður frá félagsþjónustu kemur á heimili, hvort sem börn eru á heimilinu eða ekki.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ferlið fer þannig fram að lögreglan leggur fullan kraft í rannsókn málsins og starfsmaður frá félagsþjónustunni ræðir við þolanda, börn ef þau eru á heimilinu, og eftir atvikum brotamann. Starfsmaðurinn veitir þolandanum fyrstu aðstoð t.d. með því að fara með viðkomandi til læknis ásamt því að hlúa að börnunum ef þau eru til staðar. Ákveðin eftirfylgni er í málunum sem felst í því að starfsmaður félagsþjónustu hefur samband við þolandann innan þriggja daga þar sem markmið er að meta þörf á stuðningi ásamt því að veita upplýsingar. Meintum geranda er einnig boðið að koma í viðtal til að fara yfir hans mál þar sem viðkomandi er hvattur til að leita sér viðeigandi aðstoðar. Lögreglan og starfsmaður félagsþjónustu fara svo á heimili þolanda innan viku frá því að tilkynnt var um heimilisofbeldið. 

Almenn ánægja er með þessa nýju nálgun lögreglu og sveitarfélaganna á Suðurnesjum í þessu málum. Þetta hefur leitt til þess að þolendur fá betri þjónustu og verða upplýstari um þau úrræði sem í boði eru. Í kjölfarið hefur orðið aukning á úrskurðum um nálgunarbann og brottvísun af heimili, ásamt því að fleiri mál fara til ákæruvaldsins.

Tengdar fréttir:

„Ofbeldi á heimilum á ekki að líðast.“

Hátt hlutfall heimilisofbeldis á Suðurnesjum