Bygg
Bygg

Fréttir

Fimmtudagur 3. júní 1999 kl. 23:03

SUÐURNESJAMENN URÐU AF 250 MILLJÓNUM KRÓNA ÚR NÝSKÖPUNARSJÓÐI

Stjórnarformaðurinn kærður vegna vanhæfni og ófaglegra vinnubragða „Við leggjum fram þessa kæru vegna vanhæfni og ófaglegra vinnubragða“, sagði Hjálmar Árnason, þingmaður en tilboði Suðurnesjamanna með Sunnlendingum í 250 milljón króna framlag úr framtakssjóði Nýsköpunarsjóðs fékk ekki náð fyrir augu sjóðsins. Á fundi í fyrradag með forráðamönnum þeirra aðila sem stóðu að tilboði Suðurnesjamanna- og Sunnlendinga en það voru Sparisjóðurinn í Keflavík, Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu Reykjanesbæjar og Atvinnuþróunarsjóður Suðurlands var ákveðið að leggja fram stjórnsýslukæru til viðskiptaráðherra í framhaldi af ákvörðun stjórnar Nýsköpunarsjóðs. Sl. föstudag úthlutaði hún einum milljarði til fjögurra aðila en þeir voru frá Austurlandi, Akureyri, Reykjavík og úr Vestmannaeyjum. Hjálmar Árnason sagði í samtali við VF að stjórnarformaður Nýsköpunarsjóðs, Arnar Sigurmundsson sæti beggja megin borðsins en hann er einnig stjórnarformaður í Sparisjóði Vestmannaeyja sem er aðili að tilboði Vestmannaeyinga. Hjálmar sagði að Markaðs- og atvinnumálaskrifstofa Reykjanesbæjar og Atvinnuþróunarsjóður Suðurlands væru fremst í flokki atvinnusjóða á landinu og hefðu skapað sér gott orð fyrir starfsemi sína. Í ljósi breytinga á kjördæmaskipan eftir fjögur ár þar sem Suðurnes og Suðurland ganga í sæng saman væri það óskiljanlegt hvernig hægt hefði verið að ganga fram hjá tilboði þeirra. „Það er ekki hægt að horfa á þetta öðruvísi en að stjórnarformaðurinn hafi verið búinn að ákveða þetta löngu áður því Eyjamenn vildu ekki í samtarf við Sunnlendinga og Suðurnesjamenn sem hefði verið raunhæft í ljósi þess að eftir fjögur ár verður þetta eitt kjördæmi. Í frétt frá Nýsköpunarsjóði segir að þetta framlag skuli stuðla að nýsköpun og atvinnuuppbyggingu með áherslu á landsbyggðina. Þessir fjórir rekstraraðilar sem fengu úthlutun verða að koma hver fyrir sig 125 milljónum króna til viðbótar og í framhaldinu verða stofnaðir jafn margir sjóðir til hlutafjárkaupa. Reiknað er með að búið verði að ganga frá samningum við væntanlega rekstaraðila fyrir lok júní nk. Þess er vænst að sjóðir þessir verði mikil lyftistöng fyrir atvinnulíf á landsbyggðinni en skortur á nægjanlegu áhættufjármagni hefur oft á tíðum staðið arðvænlegum verkefnum fyrir þrifum.
Bílakjarninn
Bílakjarninn