Suðurnesjamagasín - 2. þáttur kominn á vf.is
Annar þáttur af Suðurnesjamagasíni Víkurfrétta er kominn á vf.is. Í þættinum verður púlsinn tekinn á sjómönnum við löndun í Grindavík. Hljómsveitin Klassart frá Sandgerði var heimsótt í hljóðver. Rætt er við hljómsveitarmeðlimi um nýja plötu sveitarinnar sem væntanleg er í sumar. Þá fáum við að heyra tóndæmi af plötunni.
Sigga, stuðningsmaður nr. 1 hjá Grindavíkurkörfunni, er flutt úr Grindavík. Hvaða þýðingu hefur það fyrir stemmninguna á pöllunum í Grindavík. Leikfélag Keflavíkur frumsýnir hryllingssöngleikinn Hin illa dauðu á morgun, föstudaginn 13. ! Við sjáum atriði úr verkinu í þættinm í kvöld. Þá kíkjum við á Samkaupsmótið í körfubolta, þar sem yfir 800 börn komu við sögu. Síðast en ekki síst, þá kynnumst við Ragnheiði Erlínu Árnadóttur, sem sækist eftir 1. sætinu í Suðurkjördæmi hjá Sjálfstæðisflokknum, en prófkjör flokksins fer fram um helgina.