Suðurnesjakylfingar með landsliðinu á Spáni

"Þetta er búið að vera frábært en mjög stíft. Staffan hefur leiðbeint okkur við alla þætti golfleiks og margir hafa lært mjög mikið. Þetta er góð byrjun á golftímabilinu sem er að hefjast á Íslandi þó enn sé nokkuð í að golfvellirnir fái græna litinn", sagði Helgi Þórisson, Golfklúbbi Suðurnesja. Rúnar Ingi tók undir orð Helga og var mjög ánægður. Auk landsliðanna var 11 manna hópur drengja í Golfklúbbnum Keili við æfingar undir stjórn Harðar Arnarssonar, golfkennara.
Tveir aðrir kylfingar úr Golfklúbbi Suðurnesja voru ekki í æfingaferðinni. Það eru þeir Örn Ævar Hjartarson, Íslandsmeistari og Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, stigameistari síðasta árs. Örn lýkur námi í Bandaríkjunum um mitt sumar en hann stundar einnig golfið af kappi þar ytra.