Suðurnesjahafnir ekki sameinaðar en samstarf verði skoðað áfram
Að ósk Suðurnesjabæjar hafa fulltrúar Sandgerðishafnar, Reykjaneshafnar og Grindavíkurhafnar fjallað um mögulegt samstarf um rekstur hafna á Suðurnesjum. Starfshópur fulltrúa hafnanna hefur farið yfir málið, unnið greiningar á rekstri og fjallað um ýmsa möguleika. Með minnisblaði af fundi dagsett 19. maí 2021 gerir starfshópurinn skil á verkefni sínu. Niðurstaðan er sú að ekki séu rekstrarlegar forsendur fyrir nánara samstarfi eða sameiningu hafnanna miðað við rekstur þeirra undanfarin ár. Í minnisblaðinu er því beint til kjörinna fulltrúa í hafnar- og bæjarstjórnum sveitarfélaganna að þeir taki afstöðu til þess hvort auka eigi samvinnu eða sameiningu hafnanna á öðrum forsendum en rekstrarlegum. Þetta kemur fram í afgreiðslu hafnarráðs Suðurnesjabæjar frá fundi ráðsins þann 3. júní síðastliðinn.
„Hafnarráð Sandgerðishafnar lýsir ánægju með þá vinnu sem sem unnin hefur verið í málinu og þakkar starfshópi skipuðum fulltrúum hafnanna á Suðurnesjum fyrir þeirra framlag. Þrátt fyrir að starfshópurinn hafi komist að þeirri niðurstöðu að ekki séu rekstrarleg rök fyrir sameiningu á rekstri hafnanna þá telur hafnarráð að halda eigi áfram þeirri vinnu að leita leiða til að styrkja grundvöll starfsemi hafnanna með auknu samstarfi. Jafnframt verði leitað samstarfs um stefnumótun og framtíðarsýn með aukna hagnýtingu hafnanna að markmiði, þar sem m.a. verði litið til möguleika á sameiningu þeirra. Þá bendir hafnarráð á að með sameiningu hafnanna hafi þær sem heild mun meiri slagkraft og afl til að sækja fram með markaðssetningu og í samskiptum við ríkisvaldið varðandi fjárveitingar til uppbyggingar hafnanna til framtíðar,“ segir í afgreiðslu hafnarráðs.
Stjórn Reykjaneshafnar bókaði einnig um málið á dögunum en þar segir: „Stjórn Reykjaneshafnar fagnar þeirri vinnu sem unnin hefur verið varðandi möguleika á samstarfi eða sameiningu hafnanna á Suðurnesjum og þakkar vinnuhópnum fyrir góð vinnubrögð. Stjórnin er ávallt tilbúin til að leita hagræðingar í rekstri Reykjaneshafnar sem og að efla rekstur hafnarinnar á allan hátt. Í því hefur falist m.a. að eiga samtöl við aðrar hafnir á Suðurnesjum um sameiginlega hagsmuni og möguleika á samstarfi. Slík samtöl hafa gefist vel hingað til og gera það vonandi áfram. Samkvæmt minnisblaði vinnuhópsins er ekki sjáanleg rekstrarhagkvæmni í að sameina rekstur viðkomandi hafna en slíkt hlýtur að vera stór forsenda fyrir slíkri framkvæmd. Stjórn Reykjaneshafnar telur því að óbreytt fyrirkomulag í rekstri Reykjaneshafnar sé heillavænlegast að svo stöddu en ekkert hamlar því að það fyrirkomulag verði endurskoðað í framtíðinni.“ Samþykkt samhljóða.