Suðurnesin iða af lífi í sólinni
Loksins lét sú gula sjá sig
Íbúar Reykjanesbæjar sem og ferðamenn voru sáttir með sólina sem loksins lét sjá sig í gær. Mikið líf var í bænum, börn léku sér á línuskautum og hjólagarpar sáust víða um bæ. Í miðbænum voru flestir sem voru á ferli með ís og mátti sjá ágætisfjölda ferðamanna sem virtust sáttir með góða veðrið.
Skoða má fleiri myndir í myndasafni Víkurfrétta.