Suðurflug semur við herinn: Starfsfólki fjölgar verulega

Suðurflug mun taka við rekstri flugafgreiðslunnar fyrsta desember n.k. Ljóst er að með þessum samningi við Flugher Bandaríkjanna hefur starfsemi Suðurflugs tekið mikla sveiflu uppá við og sett merki sitt efst í röð flugafgreiðslufyrirtækja á Keflavíkurflugvelli.
Starfsfólki Suðurflugs kemur til með að fjölga verulega við þetta nýja verkefni.
„Suðurflug hefur undanfarin rúm sex ár starfrækt almenna flugafgreiðslu í flugstöð sinni (Terminal 2.) á Keflavíkurflugvelli. Fyrr var Suðurflug með flugkennslu og leiguflug en fyrir rúmum sex árum var tekin ný stefna við rekstur félagsins og hefur Suðurflug haslað sér völl sem ein fremsta flugagreiðslan á Keflavíkurflugvelli.
Viðskiptavinir Suðurflugs eru jafnt smáir sem stórir aðilar í flugrekstri víða um heim. Aðal umfangið tengist svo kallaðri “General Aviation” flugafgreiðslu, almennt flug utan venjulegs hefðbundins áætlunarflugs, en lýkur samt ekki þar.
Suðurflug hefur tekið að sér afgreiðslu stórra farþegavéla, nú síðast Boeing 767 sem fór fimm sinnum um Keflavíkurflugvöll í þessum mánuði svo og afgreiðsla á fraktflutningavélum“, segir Johan D. Jónsson, markaðsstjóri Suðurflugs í samtali við Víkurfréttir.
Myndin: Frá afgreiðslu Boeing 767, sem Suðurflug annaðist í síðustu viku.