Suður með sjó fylgir Víkurfréttum í dag
Með Víkurfréttum í dag fylgir 32 síðna blað um Garðinn. Blaðið heitir Suður með sjó en þar er fjallað um fólk og fréttir úr Garði. Það er Hilmar Bragi Bárðarson, fréttastjóri Víkurfrétta, sem stendur að útgáfu blaðsins en það er gefið út í tilefni af því að um þessar mundir eru liðin 30 ár síðan hann hóf blaðaútgáfu í Garðinum, aðeins 13 ára gamall. Hér að neðan má nálgast rafræna útgáfu af blaðinu.