Suðlægir vindar
Suðlæg átt 5-10 m/s, en hægari í nótt og á morgun við Faxaflóa. Skúrir og hiti 8 til 13 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðaustan 5-10 m/s og skúrir. Heldur hægari í nótt og á morgun. Hiti 9 til 13 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag: Austlæg átt, 5-10 m/s og skúrir S-til, en hægari og skýjað með köflum fyrir norðan. Hiti 7 til 12 stig.
Á miðvikudag og fimmtudag: Norðan 8-13 m/s og dálítil rigning við austurströndina, en annars hægari og stöku skúrir. Hiti 7 til 12 stig.
Á föstudag, laugardag og sunnudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt með rigningu víða um land, einkum austantil, en úrkomulítið suðvestanlands. Áfram milt í veðri.