Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Sú rússneska komin á brautarenda - myndir
Rússinn á brautarenda í Keflavík fyrir 10 mínútum. VF-myndir: Hilmar Bragi
Mánudagur 23. desember 2013 kl. 21:27

Sú rússneska komin á brautarenda - myndir

Viðgerð á rússnesku Sukhoi Superjet 100 þotunni sem brotlenti á Keflavíkurflugvelli í sumar er lokið. Vélin var tekin úr flugskýli nú áðan og hefur verið á brautarenda á Keflavíkurflugvelli síðasta hálftímann eða svo. Þar hafa mótorar vélarinnar verið prófaðir. Víkurfréttir hafa ekki upplýsingar um það hvort vélin fari af landi brott í kvöld.

Unnið hefur verið að viðgerðinni á vélinni í flugskýli 885 á Keflavíkurflugvelli. Þar var byggð yfir vélina trégrind og hún klædd byggingaplasti til að kynda upp vinnuaðstöðu flugvirkja sem vinna að viðgerðinni. Þeir hafa nú lokið viðgerð á vélinni en hún átti að fara frá Keflavíkurflugvelli fyrir árslok.


 

Public deli
Public deli