Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

  • Styttist í beinar rútuferðir til Akureyrar
  • Styttist í beinar rútuferðir til Akureyrar
Fimmtudagur 31. mars 2016 kl. 11:47

Styttist í beinar rútuferðir til Akureyrar

- frá Keflavíkurflugvelli

Beinar áætlunarferðir Gray Line milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar hefjast sunnudaginn 17. apríl næstkomandi. Í apríl og maí verður ekið þrisvar í viku en daglega yfir sumarið fram í miðjan september.

Á leiðinni milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar verður stoppað fyrir farþega í Borgarnesi, Staðarskála, Blönduósi og Varmahlíð. Eingöngu verður stoppað á viðkomandi stöðum ef farþegi hefur bókað far á vefsíðu Gray Line eða á sölustöðum fyrirtækisins. Ávallt verður að bóka far fyrirfram.

Upphaflega var áformað að hefja aksturinn 3. apríl en því þurfti að fresta vegna óvæntra tafa við innleiðingu á nýrri bókunarvél á netinu.

Lúxusrútur úr flota Gray Line annast ferðirnar. Þær eru með salernum og veitingaaðstöðu ásamt internetteningu og tveir bílstjórar verða ávallt með í för til að tryggja gæði þjónustunnar.

Áætlun Gray Line Airport Express er uppbyggð þannig að flugfarþegar sem koma til landsins síðdegis komast norður í land fyrir miðnætti og farþegar að norðan komast beint í morgunflug.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024