Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Styttir upp um helgina
Fimmtudagur 22. október 2009 kl. 08:17

Styttir upp um helgina


Veðurspá næsta sólarhringinn fyrir Faxaflóasvæðið: Norðaustan 3-8 m/s, en 8-13 N-til síðdegis. Dálítil rigning eða slydda öðru hvoru og hiti 0 til 7 stig.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:

Norðaustlæg átt, 3-8 m/s og dálítil rigning með köflum. Hiti 2 til 6 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:
Norðaustan 10-15 m/s NV-lands, en annars hægari. Rigning eða slydda og snjókoma til fjalla, en þurrt SV-lands. Hiti nálægt frostmarki fyrir norðan, en annars 2 til 6 stig.

Á laugardag og sunnudag:

Norðlæg átt, 8-13 m/s og dálítil rigning eða slydda með köflum, en þurrt að mestu S- og V-lands. Hiti 1 til 6 stig.

Á mánudag:
Hægviðri og skúrir eða él á víð og dreif. Kólnar heldur í bili.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir vaxandi austanátt með rigningu og mildu veðri, einkum S-lands.

---

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ljósmynd/elg - Frá Reykjanesi.