Styrkur til Bjargar athvarfs fyrir geðfatlaða á Suðurnesjum

Upphæðin safnaðist á holu 6 og holu 18, en á þeim holum höfðu þátttakendur tækifæri til þess að kaupa högg af atvinnukylfingi sér til framdráttar. Þátttakendur tóku þessu fagnandi og nýttu flestallir tækifærið til að styðja gott málefni.
GS lagði til kylfinga og FLE og Fríhöfnin tvöfölduðu þá upphæð sem safnaðist. Því er styrkur til Bjargar athvarfs fyrir geðfatlaða á Suðurnesjum 320.000 kr.
Mynd frá afhendingu styrksins: Gylfi Sigurðsson framkvæmdastjóri GS, Elín Árnadóttir staðgengill forstjóra FLE, Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir forstöðumaður Bjargarinnar, Hlynur Sigurðsson framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar og Sóley Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri starfsþróunarsviðs FLE.