Bygg
Bygg

Fréttir

Styrktarreikningur fyrir nýfædda dóttur með hjartagalla
Bryndís Hulda.
Laugardagur 8. desember 2012 kl. 14:46

Styrktarreikningur fyrir nýfædda dóttur með hjartagalla

Stofnaður hefur verið styrktarreikningur fyrir nýfædda dóttur þeirra Söndru Valsdóttur og Garðars Magnússonar búsett í Reykjanesbæ. Þau eignuðust dóttur þann 26. nóvember síðastliðinn. Dóttirin var skírð Bryndís Hulda en hún er með mjög alvarlegan hjartagalla sem greindist í 20 vikna sónar. Söndru var strax boði að binda enda á meðgönguna í ljósi alvarleika veikindanna en tók hún það ekki í mál.

Bryndís Hulda fór ásamt foreldrum sínum í flug til Svíþjóðar til þess að fara í stóra hjartaaðgerð þann 28. nóvember þá aðeins tveggja daga gömul. Eins og gefur að skilja þá fylgir þessu mikill kostnaður fyrir fjölskylduna. Vinir þeirra hafa sett af stað söfnun til að styðja þessa ungu fjölskyldu. Fyrir eiga þau Sandra og Garðar tvö börn, Dagnýju og Rökkva.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Allir eru hvattir til að leggja þeim lið á þessum erfiðu tímum. Upplýsingar um reikning og kennitölu kt: 190386-2879 og reikningurinn er 542-14-402847 hjá Íslandsbanka.