Styrkjum úthlutað úr styrktarsjóði Isavia
Úthlutað var úr styrktarsjóði Isavia á formannafundi Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem haldinn var í Háskólanum í Reykjavík sl. laugardag.
Styrktarsjóður Isavia var stofnaður árið 2011. Helsta markmið sjóðsins er að styrkja viðbragð björgunarsveita í hópslysum og er sérstök áhersla lögð á sveitir sem gegna hlutverki við flugslysaviðbúnað á áætlunarflugvöllum landsins. Tveimur styrkjum var úthlutað úr sjóðnum við stofnun hans í fyrra en við þessa fyrstu formlegu úthlutun úr sjóðnum í ár hlutu 18 björgunarsveitir styrki samtals að upphæð 11,8 milljónir króna. Verkefnin tengjast flest hópslysaviðbúnaði og allar björgunarsveitirnar sem hlutu styrki eru hluti af flugslysaáætlunum á flugvöllum Isavia.
Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia afhenti styrkina á formannafundi Slysavarnafélagsins Landsbjargar og þakkaði Slysavarnafélaginu Landsbjörgu fyrir gott samstarf. Sagði hann að með stofnun styrktarsjóðs Isavia vildi félagið leggja sitt af mörkum til þess að styðja frábært starf björgunarsveitanna sem lékju afar mikilvægt hlutverk í öllum hópslysaviðbúnaði í landinu.
Eftirtaldar björgunarsveitir hlutu styrk Isavia:
Björgunarsveitin Hérað Egilsstöðum kr. 1.700.000
Hjálparsveit Skáta Reykjavík kr. 350.000
Björgunarsveit Hafnarfjarðar kr. 350.000
Björgunarsveitin Kjölur Kjalarnes kr. 150.000
Súlur Akureyri kr. 1.000.000
Hjálparsveitin Dalbjörg Eyjafjarðarsveit kr. 500.000
Björgunarsveitin Dalvík kr. 300.000
Björgunarsveitin Ægir Garði kr. 500.000
Björgunarfélag Ísafjarðar kr. 600.000
Björgunarsveitin Vopni Vopnafjörður kr. 350.000
Björgunarsveitin Hafliði Þórshöfn kr. 350.000
Björgunarsveitin Ársæll kr. 600.000
Hjálparsveit skáta Garðabæ kr. 200.000
Björgunarfélag Hornafjarðar kr. 1.400.000
Björgunarfélag Vestmannaeyja kr. 800.000
Björgunarsveitin Kópur Bíldudal kr. 500.000
Svæðisstjórn á svæði 1 kr. 750.000
Björgunarsveitin Strandasól kr. 1.400.000
Samtals kr. 11.800.000
Mynd: Fulltrúar styrkþega og fulltrúar Isavia og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar við afhendingu styrkja úr styrktarsjóði Isavia, sl. laugardag 5. maí 2012.