Styrkja varnargarð vestan við Hagafell
Nú er unnið af kappi við varnargarða vestan við Hagafell. Þar eru öflugustu vinnuvélar landsins notaðar við að hækka varnar- og leiðigarða á svæðinu.
Skammt frá eru slökkviliðsmenn að setja upp slöngur og dælur. Ef hraunrennsli ógnar Svartsengi eru áætlanir um það að nota vatn til að kæla hraunið og hafa áhrif á rennsli þess.
Ljósmyndari Víkurfrétta flaug dróna í Svartsengi um miðjan dag. Myndir úr fluginu má sjá í myndasafni neðar á síðunni.