Fréttir

Styrkja nýsköpun kvenna
Fimmtudagur 11. febrúar 2016 kl. 06:15

Styrkja nýsköpun kvenna

Vinnumálastofnun og Velferðarráðuneytið taka við umsóknum til 22. febrúar um styrki til atvinnumála kvenna. Skilyrði er að verkefnið eða hugmyndin feli í sér að vera að minnsta kosti í helmings eigu einnar eða fleiri kvenna, sé nýsköpun, atvinnusköpun til fratíðar og að viðskiptahugmynd sé vel útfærð.
 
Styrkir eru veittir til gerðar viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetningar og gerðar markaðsáætlunar, þróunar vöru eða þjónustu, hönnunar og efniskostnaðar. Ennfremur geta konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun og hafa hug á því að stofna fyrirtæki á næstunni eða hafa stofnað fyrirtæki en ekki hafið rekstur, sótt um styrk til að koma henni í framkvæmd.
 
Sérstök áhersla er lögð á að styðja við þau verkefni sem eru á frumstigi þróunar og hafa ekki hlotið styrki. Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru 35.000.000 krónur og er hámarksstyrkur 3.000.000 milljónir. Ekki eru veittir lægri styrkir en 400.000 krónur.
 
Hægt er að sækja um rafrænt á heimasíðu verkefnisins www.atvinnumalkvenna.is
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024