Styrkja ljósleiðaratengingu við Svartsengi
HS orka hefur óskað framkvæmdaleyfis til lagningar ljósleiðara í vegkanti frá Fitjum og að Stapafellsvegi við Hafnaveg til að styrkja tengingu við Svartsengi. Afnotaleyfi Vegagerðarinnar liggur fyrir. Við Stapafellsveg tengist ljósleiðarinn inn á annan leiðara sem þegar hafði verið lagður fyrir Reykjanes og að Grindavík.
Skipulagsfulltrúi hefur gefið út framkvæmdaleyfi og óskar staðfestingar. Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt framkvæmdaleyfið.