Fréttir

Styrkja björgunarbátasjóð vegna rafmagnskostnaðar
Björgunarskipið Oddur V. Gíslason. VF-mynd: Hilmar Bragi
Miðvikudagur 20. febrúar 2019 kl. 09:31

Styrkja björgunarbátasjóð vegna rafmagnskostnaðar

Bæjarráð Grindavíkur hefur samþykkt að veita Björgunarbátasjóði Grindavíkur styrk á móti rafmagnskostnaði vegna björgunarskipsins Odds V Gíslasonar og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 600.000 kr. sem fjármagnaður verði með hækkun tekna hafnarsjóðs.
 
Á fundi bæjarráðs Grindavíkur var lagt fram bréf frá stjórn Björgunarbátasjóðs Grindavíkur. Þar er óskað eftir styrk á móti gjöldum sem Grindavíkurhöfn er að leggja á vegna björgunarbátsins. 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024