Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

„Stund hefndarinnar,“ segir Petrína
Þriðjudagur 8. desember 2009 kl. 09:13

„Stund hefndarinnar,“ segir Petrína


„Þetta snýst fyrst og fremst um stund hefndarinar. Þetta byrjaði um páskanna með því að tiltekin bæjarfulltrúi var ekki gerður að skólastjóra yfir nýjum skóla,“ segir Petrína Baldursdóttir, bæjarfulltrúi B-lista, í pistli sem hún ritar á heimasíðu Grindavíkur. Þar á hún við Garðar Pál Vignisson, bæjarfulltrúa Vinstri Grænna, sem nú hefur myndað meirihluta með Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki. Óhætt er að segja að bæjarpólitíkin í Grindavík hafi ferið farsakennd frá síðustu kosningum því þetta er fjórði meirihlutinn sem myndaður er á kjörtímabilinu.

Vinstri Grænir voru ekki í framboði Grindavík í síðustu sveitarstjónarkosningum. Garðar Páll var bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar einn umsækjenda um starf skólastjóra í nýjum grunnskóla. Stuttu eftir að annar umsækjandi var ráðinn í starfið sagði Garðar skilið Samfylkinguna og gekk í VG. Það sama gerði Björn Haraldsson sem var bæjarfulltrúi Frálslyndra. Þeir tveir voru því komnir í lykilstöðu undir merkjum VG, sem hvar ekki í framboði í síðustu kosningum, eins og áður segir. Meirihlutinn var því kominn í minnihluta en þeir Björn og Garðar hétu því að verja hann falli með stuðningi sínum.  Eftir að Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, fráfarandi bæjarstjóri, réði sig til annara starfa virðist límingin í þessu samstarfi hafa losnað.

Garðar Páll svarar Petrínu í pistli sem hann ritar á vef Grindavíkur. Þar segist hann ekki vinna í bæjarmálum fyrir sjálfan sig og vísar á bug ásökunum Petrínu um meintan hefndarhug hans.

„Ég er tilbúinn að treysta fólki og vinna með því af heilindum, því sem ég lofa stend ég við. Ég er ekki að vinna í bæjarmálunum fyrir mig sjálfan en vil gjarnan hafa áhrif á það hvernig samfélagi ég bý í.
Oddviti B- lista gerir það að tilgátu að ég sé að hefna mín vegna þess að ég fékk ekki skólastjórastöðu. Það er alrangt, hér eru bara hagsmunir bæjarbúa hafðir að leiðarljósi, því lofa ég, enda fyrir löngu búinn að sætta mig við þá staðreynd að fá ekki starfið. Þó situr sú meðferð sem ég fékk í fjölmiðlum og víðar í mér og ekki síður í minni fjölskyldu,“ segir Garðar Páll m.a. í pistli sínum.


Pistill Petrínu

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Pistill Garðars Páls