Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þriðjudagur 4. desember 2001 kl. 21:54

Stúlkurnar úr Grindavík komnar fram

Stúlkurnar tvær frá Grindavík sem saknað hafði verið frá því á laugardag, þær Sæbjörg María Erlingsdóttir og Andrea Karen Jónsdóttir, gáfu sig fram í dag , en lögreglan í Keflavík hafði auglýst eftir þeim. Þær reyndust hafa dvalið í heimahúsi í Reykjavík líkt og talið hafði verið. Þeir eru heilar á húfi og gáfu sig fram við lögregluna í Reykjavík fyrir um hálfri klukkustund. Þær eru ekki komnar heim til sín en lögreglan í Keflavík vinnur að því að leysa úr þeirra málum. Stúlkurnar eru báðar fimmtán ára gamlar, fæddar 1986.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024