HSS
HSS

Fréttir

Þriðjudagur 27. júní 2000 kl. 10:28

Stúlku er saknað

Lögreglan í Keflavík lýsir eftir Rakel Jónu Hreiðarsdóttur, 22 ára.Rakel fór frá Mosfellsbæ rétt fyrir kl. 08:00 í gærmorgun á leið til vinnu í Vogum á Vatnsleysuströnd þegar bifreið hennar bilaði á Reykjanesbraut í Hvassahrauni og hefur ekkert spurst til hennar síðan. Bifreiðin sem er af gerðinni Nissan Micra, rauð að lit, en hún fannst mannlaus á Reykjanesbraut í Hvassahrauni. Rakel er 176 sm á hæð, grönn, dökkhærð með axlarsítt liðað hár og dökk yfirlitum. Hún er talin vera í ljósgráum buxum, bleikri rúllukragapeysu, ljósgrárri hettuúlpu og þykkbotna skóm. Þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregluna í Keflavík í síma 421-5500.
Bílakjarninn
Bílakjarninn