Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona

Fréttir

Stukku fyrir bíla í Youtube-leik
Mánudagur 24. október 2016 kl. 07:00

Stukku fyrir bíla í Youtube-leik

Hópur ungra drengja var fyrir helgi staðinn að þeim háskalega leik að hlaupa fyrir bifreiðir á Hafnargötu í Keflavík. Lögreglumenn á Suðurnesjum ræddu við drengina, sem viðurkenndu að hafa verið að stökkva út á götuna.

Kváðust þeir hafa séð myndband á Youtube af slíku athæfi og vildu þeir prófa að leika það eftir. Þeim var bent á að svona háttarlag væri stórhættulegt og lofuðu drengirnir að hætta þessu strax.

Haft var samband við forráðamenn þeirra, auk þess sem tilkynning var send á barnaverndarnefnd.
 

Bílakjarninn
Bílakjarninn
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25