Stúdíó Huldu ekki að hætta
Stúdíó Huldu byrjar haustið af fullum krafti og meðal nýjunga verður latin-eróbikk, Tryllitæki í tækjasal, P90, Power Shape og margt fleira. Hulda Lárusdóttir og Kristmundur Carter, eigendur líkamsræktarstöðvarinnar, munu reka stúdíóið áfram í sameiningu og eru síður en svo að leggja upp laupana.Latin-eróbikk er það nýjasta í dagHilma Sigurðardóttir er nýkomin frá Bandaríkjunum þar sem hún lærði Latin-eróbikk og jazz en að sögn Huldu er latin það vinsælasta í Bandaríkjunum í dag. „Þetta er blanda af suður- amerískum dansi og eróbikki. Þessir tímar eru fyrir bæði kynin og allan aldur en áhersla er lögð á að fá mýkt í líkamann“, segir Hulda og bætir við að Stúdíóið sé fyrsta líkamsræktarstöðin sem býður upp á Latin-eróbikk enda þurfi þau alltaf að vera fyrst með nýjungarnar, eins og Tae-Bo á sínum tíma, sem nýtur enn mikilla vinsælda.Tekið á í tækjasalnum„Tryllitæki í tækjasal er fyrir fólk sem vill taka á því“, segir Hulda. „Tveir kennarar eru í tækjasal, þ.e. Margrét Richards erbókikkleiðbeinandi og Ingi Gunnar Ólafsson einkaþjálfari. Fólk þarf að skrá sig í tímana því fjöldi verður takmarkaður. Fólk fær góða útrás, skemmtun og aðhald, þ.e. reglulega fitumælingu og leiðbeiningar“, segir Hulda.Fyrir fólk með metnaðP90 er á laugardögum en það er 90 mínútna púltími sem Hilmir Ingi Jónsson kennir. „Fyrstu 60 mínúturnar eru gerðar æfingar með lóðum fyrir alla vöðvahópa, þannig að þetta er mjög góð styrking. Síðustu 30 mínúturnar er farið í kvið- og bakæfingar og þá er tíminn opinn öllum þannig að fólk sem er t.d. búið að vera í tækjasal, getur komið niður og verið með“, segir Hulda.Power Shape er að sögn Huldu, tímar fyrir þá sem þora og fólk með mikinn metnað. „Þetta er lóðatími og árangurinn er mjög góður enda eru þetta verulega erfiðir tímar. Við Margrét kennum þennan tíma“, segir Hulda.Tae-Bo alltaf jafn vinsæltAð sögn Huldu njóta Tae-Bo tímarnir stöðugra vinsælda enda er þessi tegund leikfimi fyrirtaks leið til að styrkjast og grennast. „Fólk hefur haft orð á því við mig að það finni fyrir auknu sjálfsöryggi því það lærir líka að verja sig. Einstaklingurinn fær líka góða líkamlega- og andleg útrás í Tae-Bo, og er því endurnærður á eftir en ekki þreyttur“, segir Hulda en hún kennir sjálf Tae-Bo.Persónuleg þjónustaViðskiptavinahópur Huldu og Munda er stór og fólk er á öllum aldri, frá 20 til 80 ára. „Hingað kemur alls konar fólk, en þetta er enginn tískustaður. Leikfimi er fyrir alla og engu máli skiptir hvernig klæðnaði fólk kemur í en góðir skór eru þó nauðsynlegir. Það sem skiptir mestu máli er að fólki líði vel andlega. Við leggjum okkur fram við að sinna hverjum og einum þannig að fólk finni að það skipta máli og sé ekki bara einn af hópnum“, segir Hulda og brosir sínu viðkunnalega brosi.Nánari upplýsingar um Stúdíó Huldu er hægt að nálgast á heimsíðunni www.studiohuldu.is