Streymi kviku heldur áfram inn í kvikuganginn
Nýjar gervihnattamyndir af umbrotasvæðinu við Reykjanesskaga staðfesta að streymi kviku heldur áfram inn í kvikuganginn. Mesta virknin er ennþá bundin við svæðið í kringum Nátthaga, en einnig hefur mælst smávægileg virkni um 4 km norðan við það svæði. Nýjustu gögn benda áfram til þess að mesti þrýstingur vegna kviku sé í syðsta enda kvikugangsins undir Nátthaga og þar sé því líklegast staðurinn að kvika komi upp nái hún að brjóta sér leið upp á yfirborðið. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.
Verið er að vinna nánar úr gervihnattmyndunum sem bárust í morgun, en einnig er von á nýjum myndum í fyrramálið sem mögulega geta gefið vísbendingar um hversu djúpt er á kvikuna undir jarðskorpunni.
Vísindaráð fundar á morgun til að fara yfir nýjustu gögn og mælingar.