Laugardagur 15. apríl 2006 kl. 10:57
Strauk undan lögreglu
Seinni partinn í gær hafði Lögreglan í Keflavík afskipti af utanvegaakstri í Sandvík á Reykjanesi. Urðu lögreglumenn varir við eitt torfærubifhjól í akstri í Sandvík en hjólinu var ekið á brott er lögregla kom á staðinn. Ekki er vitað hver var á hjólinu.