Fréttir

Strætó skipuleggur samgöngur á Suðurnesjum
Gunnar Þórarinsson og Reynir Jónsson framkvæmdastjóri Strætó bs.
Föstudagur 17. október 2014 kl. 10:41

Strætó skipuleggur samgöngur á Suðurnesjum

Í gær var skrifað undir samning milli Strætó bs. og Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Samningurinn felur í sér skipulagningu og framkvæmd almenningssamgangna milli þéttbýliskjarna á Suðurnesjum og tenginu þeirra við höfuðborgarsvæðið.

Hlutverk Strætó bs. verður að halda utan um upplýsingar er varða akstur verktaka fyrir S.S.S. Verður það gert með sama fyrirkomulagi og gildir varðandi samninga Strætó við verktaka vegna aksturs á þeirra vegum.

Strætó bs. tryggir farþegum á þjónustusvæði S.S.S. aðgang að vögnum í leiðarkerfi strætó á höfuðborgarsvæðinu hafi þeir til þess gild fjargjaldaform eins og þau eru skilgreind af Strætó hverju sinni. Strætó mun veita farþegum upplýsingar og fyrirgreiðslu líkt og öðrum farþegum á höfuðborgarsvæðinu.

Samningurinn tekur gildi 1. Janúar 2015 og mun hafa í för með sér mikla samgöngubót fyrir samfélagið á Suðurnesjum og bæta tengingu íbúa við höfuðborgarsvæðið.

Public deli
Public deli