Strætó hefur akstur um Suðurnes á sunnudag
Frá og með sunnudeginum 4. janúar 2015 mun Strætó hefja akstur á milli þéttbýliskjarna á Suðurnesjum ásamt akstri til og frá höfuðborgarsvæðisins. Vagnarnir munu keyra til Reykjanesbæjar, Vogaafleggjara, Grindavíkur, Garðs, Sandgerðis og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Hægt er að kynna sér tímaáætlanir fyrir allar leiðir á strætó.is
Farmiðar verða seldir á völdum stöðum í þéttbýliskjörnum á svæðinu. Einnig er hægt að greiða með debet- eða kreditkorti í vögnunum sjálfum. Á strætó.is (undir gjaldskrá) er reiknivél sem hjálpar farþegum að finna út fjölda gjaldsvæða og reiknar út verð miðað við mismunandi greiðsluleiðir. Mismunandi gjaldsvæði eru á Suðurnesjum en sem dæmi má nefna eru 4 gjaldsvæði á milli Reykjavíkur og Reykjanesbæjar og kostar farið því 1400 kr.
Markmið þjónustunnar er að bæta samgöngur íbúa á Suðurnesjum, bæði við höfuðborgarsvæðið og innan Suðurnesja. Nánari upplýsingar er hægt að finna á www.strætó.is eða hjá þjónustuveri Strætó í síma 540 2700.