HSS
HSS

Fréttir

Stórt björgunarskip staðsett í Reykjanesbæ
Laugardagur 17. október 2009 kl. 01:32

Stórt björgunarskip staðsett í Reykjanesbæ


Stórt björgunarskip, sömu tegundar og björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein, er nú staðsett í Reykjanesbæ. Björgunarskipið er staðsett í Njarðvíkurhöfn en því er tímabundið ætlað að koma í staðinn fyrir björgunarbátinn Njörð Garðarsson sem týndist á Faxaflóa þann 2. október sl. Báturinn var þá í togi aftan í björgunarskipinu Hannesi Þ. Hafstein, þegar brotsjór reið yfir Hannes og báturinn sem var í togi hefur slitnað frá. Síðan þá hefur ekkert til hans spurst, þrátt fyrir leit m.a. úr lofti.


Björgunarskipið sem nú er í Reykjanesbæ og heitir Jón Oddgeir er aukaskip sem Slysavarnafélagið Landsbjörg á og rekur og er notað þegar eitthvað af björgunarskipunum í kringum landið þurfa í viðhaldsskoðanir. Þetta björgunarskip er hins vegar á sölulista, en Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur barist fyrir fjármunum frá íslenska ríkinu í rekstur björgunarskipa en ekki fengið.


Það að björgunarbáturinn Njörður Garðarsson hafi tapast nú í byrjun mánaðarins er mikið tjón fyrir Björgunarsveitina Suðurnes, en sambærilegur bátur kostar miklar fjárhæðir og tryggingabætur munu ekki duga fyrir sambærilegum báti.


Sama áhöfn og sér um björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein mun sinna útköllum á Jóni Oddgeiri sem nú er staðsettur í Njarðvíkurhöfn .


Mynd: Björgunarskipið Jón Oddgeir, sem nú er staðsett í Reykjanesbæ.

Bílakjarninn
Bílakjarninn