Stórskemmdu bílaleigubíl og borguðu milljón á staðnum
Landcruiser bílaleigubíll, sem leigður var erlendu pari reyndist vera stórskemmdur þar sem hann fannst við hótel í Reykjanesbæ um miðnætti í gærkvöld, fimm dögum eftir að leigutíminn hafði runnið út. Var hann allur dældaður, rispaður og málningarslettur voru á honum. Lögreglan á Suðurnesjum var kölluð til og reyndist parið enn dvelja á hótelinu sem bifreiðin stóð við. Tjáði það lögreglu að það hefði misst af flugi og því ákveðið að skila ekki bílnum heldur borga bara aukadagana þegar honum yrði skilað. Aðspurð sögðu maðurinn og konan, bæði um þrítugt, að þau væru líklegast völd að skemmdunum á honum og var tjáð að þær hefði verið metnar á 1.1 milljón króna. Maðurinn var ekkert að hika en staðgreiddi tjónið með kreditkorti sínu, parið þakkaði lögreglu aðstoðina og bauð góða nótt.
Mynd úr safni