Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Stórsér á grasi við póstkassa á Ásbrú
Það sést greinilega á hjólförunum að ítrekað er ekið að póstkössunum. Myndir/[email protected]
Föstudagur 6. júní 2014 kl. 09:22

Stórsér á grasi við póstkassa á Ásbrú

Einhverjir vilja blaðið beint í bílinn

Íbúar á Ásbrú eru ekki alls kostar sáttir við umgengni umhverfis póstkassa sem hýsa Fréttablaðið á svæðinu. Svo virðist sem einhverjir hafi ítrekað ekið upp að póstkössunum sem áfastir eru á ljósastaurum, þannig að stórsér á grasinu umhverfis póstkassana. Frá götunni eru einungis tvö skref að póstkössunum en sumir virðast vilja fá blaðið beint í bílinn, eins og um lúgusjoppu sé að ræða.

Blaðamaður Víkurfrétta átti leið framhjá tveimur póstkössum í gær þar sem svona var umhorfs.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Svona er aðkoman að póstkassanum efst við Skógarbraut.

Sama staðan er við 1100 hverfið á Ásbrú.