Stormviðvörun: Víða 13-18 metrar

Veðurhorfur á landinu næsta sólarhring:
Viðvörun: Búist er við stormi á Faxaflóa, Breiðafirði og Miðhálendinu.
Suðlæg átt, víða 10-18 m/s, en allt að 25 m/s í vindstrengjum vestanlands. Rigning eða súld, en skýjað með köflum og þurrt að mestu á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast norðaustanlands að deginum.