Stormur um tíma í fyrramálið
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Hæg suðlæg átt og stöku él. SA 8-13 m/s og slydda seint í kvöld. SA hvassviðri með morgninum og rigning en snýst í SV 5-10 m/s með slydduéljum síðdegis. Hiti kringum frostmark, en mildara á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðaustan 10-15 m/s og snjókoma SA-til og dálítil él með N-ströndinni, en annars hægari og bjartviðri. Frost 1 til 12 stig, mest í innsveitum.
Á föstudag:
Ákveðin sunnanátt með snjókomu eða slyddu, en þurrt NA-til fram á kvöld. Hlýnandi veður.
Á laugardag:
Ákveðin V-læg átt með snjókomu eða éljagangi, en norðlægari um kvöldið og rofar til S- og V-lands. Hiti við frostmark.
Á sunnudag:
Hæg norðlæg átt og dálítil él N- og A-lands, en annars léttskýjað. Hiti kringum frostmark.
Á mánudag:
Útlit fyrir suðaustanátt með rigningu eða slyddu S- og V-til og hlýnandi veður.