Stormur sunnanlands í dag

Viðvörun: Búist er við stormi á Suðurlandi, Faxaflóa og á Miðhálendinu síðdegis.
Suðlæg átt, víða 8-15 m/s og skúrir eða slydduél, en bjartviðri að mestu norðaustanlands. Sunnan og suðaustan 15-23 suðvestan- og vestanlands eftir hádegi, en suðvestan 10-15 í kvöld. Minnkandi suðvestanátt á morgun og áfram skúraveður, en léttskýjað austantil á landinu. Hiti víðast 1 til 7 stig.