Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Stórhert eftirlit með ölvunarakstri
Laugardagur 3. desember 2016 kl. 08:00

Stórhert eftirlit með ölvunarakstri

Lögreglan á Suðurnesjum mun efla eftirlit með ölvunarakstri í desember og janúar og þá sérstaklega um helgar í nánd við veitingarstaði, en markmiðið verður að fækka og koma í veg fyrir ölvunarakstursbrot, en því miður þá eiga þau til að færast í aukana þessa mánuði.

Talsvert er um bæði jólahlaðborð og jólaglögg og við hvetjum alla þá sem ætla sér að fara á jólahlaðborð eða slíka skemmtun yfir jólin að skilja bílinn eftir heima.

Endum ekki jólagleðina með ölvunarakstri.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024