Mánudagur 23. júlí 2007 kl. 10:26
Stórhættulegur leikur
Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gær afskipti af unglingum sem voru að leika sér í fiskikari á sjónum við höfnina í Keflavík. Þeim var gert að hætta leiknum og var í framhaldi haft tal af forráðamönnum unglinganna. Þetta er stórhættulegur leikur og mildi að slys hafi ekki orðið að sögn lögreglu.