Stórfyrirtæki og sveitarfélög til hjálpar Sparisjóðnum í Keflavík
Reykjanesbær vinnur nú að því að koma Sparisjóðinum í Keflavík til hjálpar í því óveðri sem gengur yfir íslenskt fjármálakerfi. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir í samtali við Vísi.is að verið sé að skoða málið „mjög alvarlega". Samkvæmt heimildum Víkurfrétta er alvarlega rætt um aðkomu stórfyrirtækja og sveitarfélaga á Suðurnesjum að aðstoð við Sparisjóðinn.
„Við erum reiðubúin að skoða það mjög alvarlega að koma að Sparisjóðinum í Keflavík með einhverjum hætti,“ segir Árni á Vísi.is nú áðan. Hann segir ýmsar leiðir færar í því efni. „hér eru hundruð manna stofnfjáreigendur, mest eldra fólk sem á þarna mest sitt sparifé. Við höfum góðar vonir um að það verði hægt að vinna með sparisjóðnum til þess að hann standist þessi áföll."
Árni segir að rætt sé um að leggja inn aukið sparifé til sjóðsins og þá í samstarfi við ríkið, önnur sveitarfélög og lífeyrissjóði, þannig að hægt verði að styðja sparisjóðina áfram.
„Við höfum verið að fara yfir þessi mál undanfarna daga og erum vongóð um að Sparisjóðurinn í Keflavík standist þetta, að hann verði í nægilega góðum björgunarbúnaði. Það er mjög mikilvægt að menn standi með sparisjóðnum í sínu sveitarfélagi og við gerum það hér í Reykjanesbæ," segir Árni.
Hann bendir á að í þeim stærðum sem rætt er um í dag sé Sparisjóðurinn í Keflavík lítill banki, „en gríðarlega mikilvægur fyrir þetta samfélag og við teljum okkur hafa bolmagn til að vinna þetta verk," segir bæjarstjórinn að lokum.