Störfum fækkar um 200 til 300 - útsvar lækkar um 70 milljónir
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar fjallaði á fundi sínum í gær, 7. september, um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða, þingmál nr. 827, og fyrirliggjandi umsögn ferða- og atvinnumálanefndar um þingmál nr 827. Í umsögninni kemur ma. fram:
Sjávarútvegsfyrirtækin í Grindavík skapa um 1.000 bein störf við veiðar og vinnslu á Íslandi, sem eru álíka mörg störf og eru í áliðnaði á Íslandi. Varlega áætlað hleypur fjöldi afleiddra starfa sem sjávarútvegur í Grindavík skapar á fleiri hundruðum. Skerðing á aflaheimildum um 15% ætti því að öðru jöfnu að leiða til 15% fækkun starfa, eða um 150 bein störf. Gera má ráð fyrir annarri eins fækkun afleiddra starfa í vélsmiðjum, hjá iðnaðarmönnum og fleiri þjónustuaðilum. Heildaráhrif skerðingar aflaheimilda í Grindavík mun því að líkindum fækka störfum um 200-300. Lækkun tekna og fækkun starfa vegna skerðingar aflaheimilda mun leiða til um 70 milljóna kr. lækkunar á útsvari bæjarins.
Grindavíkurhöfn er umsvifamesta fiskihöfn landsins, en á árinu 2010 var landað um 35.000 þorskígildistonnum í Grindavík. Dragist landaður afli saman um 4.000 þorskígildstonn mun það leiða til tekjutaps upp á um 20 milljónir á ári. Afkoma hafnarinnar er mjög slæm fyrir þar sem tekjur hrundu við það að fiskimjölsverksmiðjan brann fyrir fáeinum árum og var ekki endurreist. Grindvíkingar fóru ekki fram á sérmeðferð eftir það reiðarslag, heldur börðust áfram í öðrum greinum sjávarútvegs eins og þeir hafa alltaf gert og vilja fá að gera í friði.
Auðlindagjaldið er sértækur skattur á sjávarútvegsfyrirtæki og þar með íbúa sjávarbyggða. Frá árinu 2004 hafa sjávarútvegsfyrirtæki í Grindavík greitt um einn milljarð króna í veiðileyfagjald sem runnið hefur til ríkisins í stað þess að nýtast að minnsta kosti að hluta í þágu þess bæjarfélags þar sem arðurinn skapast. Bæjarfélagsins sem ber kostnað af höfninni og öðrum innviðum sem nýtast landsmönnum öllum.
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar leggur til að frumvarpið verði dregið til baka og reynt verði að ná sátt um íslenskan sjávarútveg með reglum sem hafi það að markmiði að þær styrki greinina í heild sinni og skapi hvata til þess að hámarka verðmæti, draga úr framleiðslukostnaði og auka þar með arðsemi og tekjur þjóðarbúsins.
Lesa nánar á heimasíðu Grindavíkurbæjar.