Föstudagur 9. júní 2017 kl. 14:42
Stórbruni í Sandgerði
Allt tiltækt slökkvilið frá Brunavörnum Suðurnesja var rétt í þessu kallað út vegna stórbruna í Sandgerði. Þegar slökkviliðið mætti á staðinn var einbýlishús alelda og sást reykurinn langa leið frá.
Meðfylgjandi mynd var tekin af Hilmari Braga.