Stór-sinueldur í Sandgerði
Slökkviliðsmenn í Slökkviliði Sandgerðis börðust í kvöld við víðáttumikinn sinueld í Sandgerði.Eldurinn var kveiktur í kvöldmatartímanum á „kafloðnu“ svæði neðan við Stafnesveg. Slökkviliðið notaðist bæði við vatn og svokallaðar klöppur til að slökkva eldinn. Þá tóku ungir drengir einnig þátt í slökkvistarfinu.Egill Ólafsson slökkviliðsstjóri sagði í samtali við vf.is að fullorðið fólk væri grunað um að hafa kveikt eldinn.