Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Stopp einelti á Suðurnesjum
Hluti hópsins sést hér ræða málin á fundi, innfellda myndin er af bæklingi sem hópurinn hefur dreift til fyrirtækja til kynningar á verkefninu. VF/JPK
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
fimmtudaginn 30. mars 2023 kl. 06:36

Stopp einelti á Suðurnesjum

Pétur R. Pétursson er leiðbeinandi hjá Miðstöð símenntunar í Reykjanesbæ [MSS] þar sem hann fæst við að kenna ungu fólki sem er í starfsendurhæfingu. „Ég hef verið að kenna framkomu og tjáningu ásamt vöruþróun,“ segir Pétur en hópur sem hafði verið í tímum hjá honum kom með hugmynd að brýnu samfélagsverkefni og vinnur nú hörðum höndum að því að fjármagna verkefnið svo það geti orðið að veruleika.

„Við fórum í hugmyndavinnu og ákveðið var að vinna verkefni sem nýttist nærsamfélaginu. Við stefnum að kaupum á hettupeysum sem á stendur STOPP EINELTI. Því miður hefur sá leiði siður farið illa með marga og sárin mörg,“ sagði Pétur.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Tólf ára börn á Suðurnesjum fá hettupeysu

Til að vekja athygli á því leiða samfélagsmeini sem einelti stefnir hópurinn á að gefa öllum tólf ára börnum á Suðurnesjum hettupeysu með áletrunin STOPP EINELTI. „Þau eru á tímamótum, eru að fara úr grunnskóla og upp í gaggó og á viðkvæmum aldri,“ segir Pétur.

Hópurinn hefur dreift bæklingum til fyrirtækja til kynningar á verkefninu og óskað eftir stuðningi við verkefnið.

„Allt svona kostar að sjálfsögðu en við erum að tala um 1,8 milljónir í heildina þannig að allt telur. Við höfum verið að leita fjárstuðnings í þetta meðal fyrirtækja hér í bæ og fengið fínar undirtektir og bíðum frekari svara. Barnamálaráðherra styrkir verkefnið um 250 þúsund krónur og forsætisráðherra um 150 þúsund krónur, við erum að skríða yfir milljón í styrkjum í þessum töluðu orðum,“ sagði Pétur að lokum en hópurinn er í kappi við tímann því stefnan er að koma peysum á krakka nú í vor áður en skóla lýkur.

Vinstri mynd: Steinar og Elli láta sitt ekki eftir liggja og eru meðal þeirra sem standa að baki verkefninu. Aðsend mynd | Hægra megin: Pétur R. Pétursson. VF/JPK

Hægt er að leggja verkefninu lið með því að leggja inn á reikning Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum. Reikningur: 121-26-5602. Kennitala: 560298-2349. Merkja: v. hettupeysa.

Allar nánari upplýsingar veitir veitir Pétur R. Pétursson á [email protected].